BÓKIÐ SKOÐUN Ásta s: 897-8061 eða Dan s: 896-4013Kjöreign ehf., fasteignasala, Ármúla 21, Reykjavík, sími 533-4040 kynnir í einkasölu 130,8 fm 4ra herbergja íbúð, merkt 110 á 1.hæð með svölum sem snúa í suður og merktu bílastæði nr. 05 í lokaðir bílageymslu í nýju fjölbýlishúsi við Nónsmára 15 í Kópavogi. Lýsing:Komið er inn í anddyri með fataskáp. Stofa og eldhús eru samliggjandi með útgang á svalir sem snúa til suðurs. Í eldhúsi fylgir uppþvottavél og ísskápur frá AEG. Í stofu er útbyggður gluggi með setbekk. Hjónaherbergi er rúmgott með fataskáp og baðherbergi með sturtu innaf. Góð tvö svefnherbergi með fataskáp. Flísalagt baðherbergi er með innréttingu og sturtu, inn af baðherbergi er sér þvottahús íbúðarinnar. Góð 11 fm sérgeymsla fylgir íbúðinni í kjallara. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla er einnig í kjallara. Allar innréttingar eru frá HTH og tæki í eldhúsi eru frá AEG.
ÍBÚÐIN ER TILBÚIN TIL AFHENDINGAR FLJÓTLEGAÁhugasömum kaupendum er bent á að kynna sér vel skilalýsingu seljanda.
Fjölbýlishúsið Nónsmári 9-15 er fjögur stigahús með samtals íbúðum og er lyfta í hverju stigahúsi á milli allra hæða. Í húsinu er 2ja, 3ja, 4ra og 5 herbergja íbúðir af ýmsum stærðum. Íbúðum á jarðhæð og 1. hæð fylgir stór sér afnotaréttur þar sem verður afgirt verönd. Gott útsýni er frá flestum íbúðum. Allur frágangur er vandaður og verður húsið einangrað að utan og klætt með álklæðningu. Veggir milli íbúða eru með aukinni þykkt til að ná fram aukinni hljóðeinangrun. Sameign er rúmgóð og björt. Byggingaraðili er Nónhæð ehf. (K. S. Verktakar).Allar upplýsingar um byggingaraðila, sölugögn og verð, stærðir,teikningar og frágang íbúðanna eru hjá sölumönnum Kjöreignar og á upplýsingavef Nónhæðar; www.nonhaed.is. Sölumenn Kjöreignar, sími 533-4040 eða [email protected]
Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali gsm. 897-8061 eða [email protected]Dan Wiium lögmaður og lögg. fasteignasali, gsm.
896-4013 eða [email protected]